Persónuvernd


Tímavera ehf.
Kambasel 81
109 Reykjavík
Ísland

Kennitala: 4706170630
VSK númer: 130696

timavera@timavera.is
+354 539 5118

Samantekt: Tímavera geymir nafn fyrirtækis, kennitölu, tölvupóstföng, síma­númer, og nöfn tengiliða. Tímavera geymir eftirfarandi starfsmanna­gögn: nafn (eins og gefið er upp af fyrirtæki), GPS staðsetningar (ef leyfi er gefið), síma­númer (ef notað við uppsetningu starfsmanna reiknings), inn og út tímastimplar og athugasemdir við vinnufærslur. Ef upp koma villur á vefsíðu eða appi eru greiningar­gögnum eins og IP tölum, gerð tækja og stýrikerfa sjálfkrafa eytt eftir 90 daga. Gögn eru geymd á öruggan hátt þar til þeim er eytt. Gögnum er ekki deilt. Tveir eigenda Tímaveru hafa fullan aðgang að öllum gögnum. Tímavera notar ekki vafrakökur. Þú hefur rétt til að biðja um, leiðrétta, eyða, takmarka og flytja gögnin þín.

Hvaða gögnum söfnum við

Tímavera stefnir að því að geyma eins lítið af persónugreinanlegum upplýsingum og við getum. Fyrirtæki eru hvött til að stofna starfsmanna­reikninga með því að nota fornafn eða gælunafn í stað fulls nafns. Við notum ekki rakningarkökur eða greiningar frá þriðja aðila. Listi af öllum gögnum sem við söfnum er hér að neðan.

Fyrirtækja gögn

  • Nafn fyrirtækis og fyrirtækja aðgangs
  • Kennitala fyrirtækis
  • Tölvupóstur og símanúmer tengiliða fyrirtækis
  • Nafn tengiliða fyrirtækis

Starfsmanna gögn

  • Nafn starfsmanns eins og fyrirtækið gefur upp
  • GPS staðsetningar, ef leyfi er gefið
  • Dagsetningar- og tímastimpill þegar klukkað er inn og út
  • Símanúmer, ef notað við uppsetningu starfsmanna reiknings
  • Athugasemdir í vinnufærslum eins og starfsmenn gefa upp

Aðstæðubundin & Tímabundin gögn

  • Ef upp kemur villa á vefsíðu eða appi Tímaveru skráum við greiningargögn um hvað fór úrskeiðis svo við getur lagað vandamálið. Greiningargögnin geta innihaldið IP-tölur og farsímatækis upplýsingar eins og gerð og útgáfu stýri­kerfis. Greiningargögnum er sjálfkrafa eytt eftir 90 daga.

Hvernig söfnum við gögnunum þínum

Nær öllum fyrirtækja upplýsingum er safnað í gegnum prufuskráningar- og áskriftar staðfestingar formin. Við gætum bætt við tengiliðanöfnum fyrir­tækja með því að fletta upp uppgefnu símanúmeri og nafni fyrirtækis.

Nöfn og símanúmer starfsmanna eru veitt af eiganda fyrirtækjareikningsins og er safnað í gegnum vefsíðu Tímaveru. GPS hnit starfsmanna (ef leyfi er gefið), tíma­stimplar og athugasemdir við vinnufærslur er safnað í gegnum Tíma­veru appið.

Hvernig notum við gögnin þín

Tímavera notar söfnuðum gögnum til að reka tímaskráningar þjónustu. Við notum tölvupóstföng fyrirtækja og símanúmer til að hafa samband ef þörf krefur. Til dæmis til að staðfesta eða loka áskrift, staðfesta beiðnir bókara og endurskoðenda um reikninga og önnur nauðsynleg samskipti.

Hversu lengi geymum við gögnin þín

Fyrirtækja- og starfsmannagögn eru geymd þar til þeim er eytt. Aðstæðu­bundum og tímabundum gögnum eru eytt sjálfkrafa eftir 14 - 90 daga.

Hver hefur aðgang að gögnunum þínum

Fyrir utan vinnsluaðila sem geyma gögnin okkar þá eru aðeins eigendurnir Jón Rúnar Helgason og Ólafur Magnússon með fullan aðgang að gögnum.

Jón Hafdal Sigurðarson og Finnbogi Þorsteinsson eru meðeigendur og geta séð tilkynningar þegar fyrirtæki skrá sig í prufu og staðfesta áskrift. Þessar tilkynningar sýna reiknings- og fyrirtækisnafn, símanúmer og netfang. Þeir hafa engan aðgang að öðrum fyrirtækja- eða starfsmannagögnum.

Vinnsluaðilar

  • Gagnagrunnur og netþjónar: Amazon Web Services (AWS Írland) geymir öll gögn viðskiptavina og starfsmanna sem tengjast Tímaveru og sendir öll SMS.
  • Sími: Toky geymir talhólfsskilaboð og sögu um númer sem hringja í símanúmer fyrirtækisins okkar +354 539 5118.
  • Stjórnun viðskiptavinatengsla: OnePageCRM, Asana, Slack geymir afrit af tengi­liðaupplýsingum fyrirtækisins.
  • Tölvupóstsamskipti: Google Workspace.
  • Loggar & villuskráning: Datadog, Sentry, Rollbar geyma tímabundin gögn, sjálf­krafa eytt eftir 90 daga.
  • Reikningar og greiðslur: Payday & Konto (fyrir 2021) geymir nöfn fyrirtækja, kennitölu og tölvupóstföng.

Persónuverndar réttur þinn

Þú hefur rétt á að:

  • biðja um afrit af persónulegum gögnum þínum
  • leiðrétta allar upplýsingar sem þú telur vera ónákvæmar eða ófullnægjandi
  • eyða persónulegum gögnum þínum
  • takmarka vinnslu persónuupplýsinga þinna
  • andmæla vinnslu persónuupplýsinga þinna
  • flytja persónuupplýsingar þínar til þín eða annara stofnunar

Ef þú leggur fram beiðni höfum við einn mánuð til að svara þér. Ef þú vilt nýta einhverra þessara réttinda, vinsamlegast hafðu samband við okkur á netfangið okkar: timavera@timavera.is.