Starfsmenn geta handskráð og breytt vinnufærslum


2022-10-15

Allar breytingar

Samantekt: Starfsmenn sem fá aukin réttindi geta handskráð og breytt vinnufærslum í appinu.

Til að veita núverandi starfsmönnum nýju réttindin er smellt á Breyta takkann í starfsmanna töflunni, haka við réttindin og staðfesta.

Skjáskot af Tímaveru tímaskráningar stjórnborði. Gluggi til að breyta starfsmanni. Inntök innihalda starfsmanna nafn, lykilorð og valkost til að gefa starfsmanni aukin réttindi til að handskrá og breyta vinnufærslum í appinu. Takkar á botni: breyta starfsmanni, óvirkja starfsmann og loka glugga.

Sami valkostur er sýndur við að búa til starfsmann. Næsta skref er að starfsmaðurinn skrái sig út og aftur inn í appinu svo að nýju réttindin taki gyldi. Í appinu: Stillingar -> Útskrá -> Innskrá!. Eftir að starfsmaður stimplar sig inn í verkefni birtast nýjir inn/út takkar (13:37 og hh:mm):

Skjáskot af Tímaveru tímaskráningar appi. Sýnir skjáinn af starfmanni stimpluðum inn í Verkefni A, liðinn tími: 1 sekúnda og klukk inn tími: 13:37.

Til að breyta upphafstíma er smellt á vinstri takkann fyrir ofan verkefna nafnið. Appið fer þá á nýjan skjá til að breyta tímanum. Strokið út sjálfgefna tímann og veljið nýjan tíma á 24 klst formi. Þegar að síðasti stafurinn í nýja tímanum hefur verið valinn uppfærist tíminn sjálfkrafa og appið fer aftur til baka á fyrri skjá. Demó myndband:

Ef þess þarfnast er líka hægt að smella á dagsetningar takkann til að breyta um dagsetingu. Til dæmis til að bæta við vinnufærslu fyrir gærdaginn eða dag í síðustu viku. Til að byrja með þarf að skrifa tímann inn á 24 klst formi. Að geta skráð tímann á 12 klst am/pm formi er á dagskránni til að bæta við seinna.