Tímavera logo, circular geo-location with clock indicators in the center
Tímavera

Tímaskráning fyrir verktaka

Nýskráning

Nákvæmni

Mældu nákvæmlega stærsta kostnaðarliðinn: vinnustundir starfsmanna. Hættu að giska, undir og ofrukka verkkaupa.

Einfaldleiki

Starfsmenn nota sína eigin snjallsíma. Stjórnendur fá yfirsýn á einum stað yfir verkefni og tímafjölda starfsmanna á vefsíðunni.

Áreiðanleiki

Þú getur treyst á okkur. Persónuleg þjónusta frá stofnendum. Áreiðanleiki og uppitími er í algjörum forgangi hjá okkur.

Umsagnir


"Auðvelt, notendavænt, einfalt og þægilegt í notkun."

Ágúst Garðarsson
Málarameistari, ÁG Málun ehf.
Byrjaði Febrúar 2018

"Mikill tímasparnaður í kringum hver einustu mánaðarmót."

Eva Rós Gústafsdóttir
Eigandi Veisluþjónar ehf.
Byrjaði Febrúar 2018

Um Tímaveru



Tímavera er tímaskráningarkerfi sem notar snjallsíma starfsmanna við inn- og útstimplun í stimpilklukku appi.

Kerfið hefur tvær hliðar:

  • iPhone & Android app fyrir starfsmenn til að skrá tíma
  • Vefsíða fyrir stjórnendur til að sjá og sýsla með unna tíma

Stjórnendur og eða eigendur fyrirtækis fá fyrirtækja aðgang að vefsíðunni þar sem hægt er að fá góða yfirsýn yfir unna tíma hvers starfsmanns og verkefnis. Skýrslur með einföldum yfirvinnu útreikningum ef þörf er á er í boði á vefsíðunni. Á vefsíðunni eru nýjir notendur og verkefni búin til.

Appið

Skjáskot af innskráningar skjá í Tímaveru appinu. Inntök fyrir fyrirtækja nafn, notendanafn starfsmanns og lykilorð. Rauðir innskráningar takki.
Skjáskot af lista af verkefnum í Tímaveru appinu. Hvert verkefni er stór rauður takki. Sýnd verkefni eru Verkefni A, Samningur B, Vinnustaður C. Í efra vinstra horninu er takki af gír sem sýnir Stillingar skjáinn. Í efra hægra horninu er þrefalt jafnt og takki sem sýnir starfsmönnum vinnufærslur sínar.
Skjáskot úr Tímaveru appinu sem sýnir starfsmann stimplaðan inn í Verkefni A og tíminn tifar. Liðinn tími er 03:13:37. Stór rauður takki sem stendur á Klukk Út er í miðjunni. Smærri Bæta við ahugsemd takki er fyrir neðan.
Skjáskot af að bæta við athugasemd við vinnufærslu í Tímaveru appinu. Athugasemdin er 'Grunnur tilbúinn. Keypti efni fyrir 133.337 kr'.
Skjáskot af Tímaveru appinu sem sýnir lista af 3 vinnufærslum.
Skjáskot af Tímaveru appinu sem sýnir staka vinnufærslu. Lengd: 7 klst. Upphaf: 08:00, miðvikudagur 4. janúar 2023. Endir: 15:00, miðvikudagur 4. janúar 2023. Verkefni A. Athugasemdir: Grunnur tilbúinn. Keypti efni fyrir 133.337kr.

Þau vandamál sem Tímaveru er ætlað að leysa:

  1. Sambærilegar lausnir eru oft dýrari og flóknar í notkun.
  2. Ekki þarf nein auka tæki eða uppsetningu, bara aðgang að heimasíðunni. Starfsmenn nota sína eigin síma.
  3. Í kerfinu sjást staðsetningar starfsmanna þegar þeir klukka sig inn og fyrir hvaða verk. Það tryggir bæði vinnuveitanda og starfsmanni gegnsæi gagnvart viðskiptavinum og hvor öðrum.
  4. Starfsmenn geta skrifað athugasemdir við vinnufærslur til að koma skilaboðum áleiðis.

Tímaskráningarkerfið er í virkri þróun. Við höfum og munum ávallt forgangsraða einfaldleika, virkni og áreiðanleika.

Skjáskot af Tímaveru vefsíðu stjórnborðinu. Listi af vinnu færslum starfsmanna á mismunandi verkefnum.

Skjáskot frá vefsíðu mælaborði Tímaveru

Myndir

Myndum er hægt að hlaða upp þegar starfsmaður er stimplaður inn. Algeng notkunartilfelli:

  • Myndir af framvindu verkefna.
  • Myndir sem skjalfesta og sanna ef ófyrirséðar aðstæður komu upp. Til dæmis ef meiri vinnu er þörf en gert var ráð fyrir í verksamning sem gæti leytt til aukins kostnaðar til verkkaupa.
  • Sönnun á réttum verkefnaskilum. Kemur sér vel ef upp kemur ágreiningur eða ef aðrir verktakar skemmdu fyrir.
  • Myndir af reikningum sem áminning hvaða verkefni þeir tilheyra svo það gleymist ekki að rukka auka kostnað ef við á.

Full Réttindi

Stjórnendur geta gefið völdum starfsmönnum aukin réttindi til að handskrá og breyta vinnufærslum í appinu. Heppilegt þar sem vinnuflæðið er að skrá vinnufærslur í lok dags eða til að leiðrétta vinnufærslur ef það gleymdist að stimpla inn eða út.

Verð


8

þkr á mánuði
1 - 4 starfsmenn

14

þkr á mánuði
5 - 24 starfsmenn

30

þkr á mánuði
25 - 49 starfsmenn

60

þkr á mánuði
50 - 200 starfsmenn

Free 14 day trial
No hidden fees
Cancel any time
60 day refunds

The subscription can be paid in EUR, USD, GBP and 23 other currencies. Prices above do not include VAT or sales tax, which may be added if required.

Nýskráning



Nú þegar með aðgang?
Smelltu hér til að innskrá.

14 daga frí prufa
Áskrift staðfest eftirá

Hafa samband


Endilega hafðu samband ef þú hefur einhverjar spurningar eða vilt þiggja hjálp við uppsetningu á tímaskráningarkerfinu og stimpilklukku appinu sem Tímavera býður uppá.

Tölvupóstur

timavera@timavera.is

Sími

+354 539 5118

Persónuleg símanúmer ef þörf er á:
Finnbogi: +354 695 3384
Jón Hafdal: +354 770 1532
Ólafur: +354 772 7895

Um fyrirtækið


Tímavera ehf. var stofnað í Maí 2017 af tveimur forriturum og tveim málarameisturum sem voru fyrstu tveir notendur kerfisins. Finnbogi og Jón Hafdal höfðu báðir rekið sín eigin málningarfyrirtæki um árabil og voru ekki sáttir með tímaskráningarkerfið sem þeir voru að nota. Ólafur útbjó fyrstu útgáfu af vefsíðunni og fékk svo félaga sinn Jón Rúnar til að smíða appið. Eftir það fór boltinn svo að rúlla. Álíka verktaka fyrirtæki bættust smátt og smátt við þar sem þau sáu þörfum sínum mætt í einföldu kerfi.

Ólafur Magnússon

Ólafur Magnússon

Stofnandi & Forritari

Jón Rúnar Helgason

Jón Rúnar Helgason

Stofnandi & Forritari

Finnbogi Þorsteinsson

Stofnandi & Málarameistari

Jón Hafdal Sigurðarson

Stofnandi & Málarameistari

Aðrar Umsagnir


"Snilld að fá áreiðanlega yfirsýn í lok mánaðar og verkefna."

Eyþór Bergvinsson
EB Málun ehf.
Byrjaði Nóvember 2017

"Það er nokkuð ljóst að ég mun mæla með Tímaveru til allra sem að ég þekki í mínum bransa... Kerfið, og ekki síst fyrir viðleitina hjá ykkur..."

Smári Eiríksson
Selhóll byggingafélag ehf.
Feb 2020 til Maí 2023

Innskráning fyrirtækja


Gleymt lykilorð?

Ekki með aðgang?
Komdu í prufu.

Ekki fyrirtæki?
Skráðu þig inn sem starfsmaður